Innskráning í Karellen
news

Leikskólinn lokaður 24. október

19. 10. 2023

Á fjórða tug félagasamtaka hefur boðað til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október nk., þar sem konur og kvár sem það geta eru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf þann dag. Ljóst er að veruleg röskun verður á samfélaginu þennan dag og gera má ráð fyrir að áhrifin verði mikil í leikskólum, grunnskólum, félagsmiðstöðvum og á frístundaheimilum Garðabæjar. Í kringum 75% starfsfólks Garðabæjar telst til þeirra sem verkfallsboðunin nær til og hlutfallið er enn hærra á leikskólanum Sjálandi. Verður leikskólinn þ.a.l. óstarfhæfur á verkfallsdaginn og óhjákvæmilegt að loka honum þann dag. Garðabær styður jafnréttisbaráttu kvenna og kynsegin fólks og leitar því til forráðafólks að sýna þessari röskun skilning.

© 2016 - 2024 Karellen