Innskráning í Karellen
news

Bangsadagur

28. 10. 2021

Bangsadagurinn er haldinn hátíðlegur 27. október ár hvert en það var fæðingardagur Theodore Roosevelt, fyrrverandi bandaríkjaforseta, sem gjarnan var kallaður Teddy sem er enska orðið yfir bangsa.

Roosevelt var mikill skotveiðimaður en dag einn á bjarnarveiðum fann hann svo til með litlum bjarnarhúni að hann sleppti honum lausum í stað þess að skjóta hann. Washington Post birti skopmynd af atvikinu sem vakti heimsathygli. Búðareigandi í New York var einn þeirra sem heilluðust af sögunni og bjó til leikfangabangsa sem hann kallaði „Bangsann hans Teddy“ en Roosevelt var gjarnan kallaður Teddy. Bangsinn seldist eins og heitar lummur og brátt fóru leikfangabangsar að ganga undir nafninu „teddy“ í Bandaríkjunum.




© 2016 - 2024 Karellen